FRÉTTIR
Heimildarmynd um Dieter Roth sýnd í Háskólabíói 27. maí
Heimildarmynd Edith Jud um líf og starf hins heimsþekkta myndlistamanns Dieter Roth verður sýnd á sérstakri sýningu fimmtudaginn 27. maí kl. 18 í Háskólabíói. Miðaverð er 800 kr. Kvikmyndin er sýnd í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík en Pegasus kvikmyndagerð sér um dreifingu á myndinni.
Dieter Roth bjó á Íslandi um árabil skildi mikið eftir sig af list og minningum og er sagt að hann hafi lifað á við tuttugu manns. Myndin er gerð með hjálp vina, ættingja og kunningja sem rifja upp gleði og sorgir þessa magnaða listamanns. Aðalpersóna myndarinnar er sonur Dieters, Björn Roth sem
hefur fetað í fótspor föður síns og er myndlistarmaður af lífi og sál.

