FRÉTTIR
SAMFRAMLEIÐSLUFUNDUR KALLAR EFTIR ÞÁTTAKENDUM
Samframleiðslufundurinn Nordic Co-Production and Film Financing Forum fer fram á kvikmyndahátíðinni í Haugasundi í Noregi dagana 20.-23. ágúst næstkomandi.
Fundurinn er opinn framleiðendum, fjárfestum, söluaðilum og kvikmyndasjóðum sem gætu hugsað sér þáttöku í samframleiðlsuverkefnum. Á fundinum í ár verður sjónum sérlega beint að samframleiðsluverkefnum á milli Kanada, Þýskalands og Norðurlandanna. Markmiðið með fundinum er að styrkja framleiðslu leikinna kvikmynda í fullri lengd á Norðurlöndunum.
Nánari upplýsingar um fundinn og umsókn til þáttöku á honum má finna á vefslóðinni http://www.filmweb.no/filmfestivalen2009/newnordicfilms/article180611.ece?language=english
Umsóknarfrestur er til 20. júní.

