Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Norrænar myndir til Shanghai

1.6.2004

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Shanghai verður haldin í sjöunda skiptið dagana 6.-13. júní n.k. og að þessu sinni verða norrænar kvikmyndir í sviðsljósinu. Alls munu 18 slíkar taka þátt í Nordic Focus hluta hátíðarinnar. Nói albínói og Fálkar verða sýndar þarna fyrir Íslands hönd og verður Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri viðstaddur hátíðina.

Norrænu kvikmyndastofnanirnar taka höndum saman við að kynna norrænar myndir fyrir Kínverjum og munu m.a. standa fyrir blaðamannafundum, málþingum um norrænar kvikmyndir og hringborðsumræðum með þátttöku kínverskra og norrænna kvikmyndagerðarmanna meðan á hátíðinni stendur.

Vefur hátíðarinnar: http://www.siff.com/index_en.php
 

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar