Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

myrin

FRÉTTIR

Hilmar Oddsson fær leikstjórnarverðlaun fyrir Kaldaljós

23.6.2004

Hilmar Oddsson hlaut í gærkvöldi aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Art Film Festival í Slóvakíu fyrir besta leikstjórn kvikmyndarinnar  Kaldaljós. Þess má geta að önnur mynd í leikstjórn Hilmars, Tár úr steini,  var einnig í keppni á þessari hátíð árið 1997.  Hátíðin leggur áherslu á að sýna listrænar kvikmyndir og sú mynd sem hlaut verðlaun fyrir kvikmyndatöku var sænsk mynd, Ondskan, en hún var einmitt tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrr á árinu. Annar íslenskur leikstjóri, Börkur Gunnarsson,  var með sína fyrstu mynd á hátíðinni í keppni en hún er tékknesk og nefnist Silný kafe eða Sterkt kaffi. Heimasíða hátíðarinnar er: http://www.artfilm.sk/

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar