Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Feðgarnir Ingvar E. Sigurðsson og Áslákur Ingvarsson vinna til verðlauna á kvikmyndahátíðinni Festroia í Portúgal

23.6.2004

Kvikmyndin Kaldaljós hlaut tvenn verðlaun við lokaathöfn kvikmyndahátíðarinnar Festroia í Portúgal, sem lauk nýlega en myndin var þar í alþjóðlegri keppni. Áslákur Ingvarsson hlaut "New Talent" verðlaunin en þau eru veitt af Borgarráði Setúbal, þar sem hátíðin er haldin, og Ingvar E. Sigurðsson hlaut "Silver Dolphin" eða silfur höfrunginn fyrir bestan leik í aðalhlutverki. Hilmar Oddsson, leikstjóri myndarinnar var gestur hátíðarinnar og tók við verðlaunum fyrir hönd feðganna. Festroia er mikilvæg kvikmyndahátíð og er með sérstaka viðurkenningu frá FIAFP, alþjóðasamtökum kvikmyndaframleiðenda.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar