Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Íslendingar vekja athygli á Karlovy Vary

Naesland_bladamannafundur_KK

30.9.2004

Fréttatilkynning frá Kvikmyndamiðstöð Íslands

Í gærmorgun var blaðamannafundur með aðstandendum myndarinnar þar sem leikstjórinn, Friðrik Þór Friðriksson ásamt aðalleikara, Gary Lewis, sátu fyrir svörum. Gary Lewis er þekktur skoskur leikari sem hefur unnið með leikstjórum á borð við Danny Boyle, Ken Loach, Stephen Daldry og Martin Scorsese en þekktustu myndir hans eru Billy Elliot og Gangs of New York.
Heimsfrumsýning á Næsland var svo í gærkvöldi og uppselt var á sýninguna þar sem færri komust að en vildu enda var aftur uppselt á sýningu myndarinnar í dag. Næsland hefur vakið mikla athygli og hlotið mikið umtal en dómar hafa ekki enn birst um myndina.

Kvikmyndin Kaldaljós er einnig á hátíðinni sem hluti af dagskrá er nefnist "Horizons" en þar er lögð áhersla á kvikmyndir sem hafa unnið til verðlauna á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og hafa vakið verðskuldaða athygli.
Kaldaljós er þar í hópi mynda á borð við, La mala Educacion - leikstjóri Pedro Almodovar, Eternal Sunshine of the Spotless Mind - leikstjóri Michel Gondry, The Saddest Music in the World - leikstjóri Guy Maddin og Farenheit 9/11 - leikstjóri Michael Moore. Fyrsta sýningin á Kaldaljós verður á föstudag þar sem Hilmar Oddson, leikstjóri myndarinnar, verður viðstaddur og kynnir mynd sína.

Börkur Gunnarsson er einnig staddur á hátíðinni með sýna fyrstu mynd, Silny Kafe, (Biturt Kaffi) en hún er í dagskrá yfir nýjar tékkneskar kvikmyndir. Myndin hefur vakið umtal og er góð byrjun á leikstjórnarferli Barkar.


Heimsíða hátíðarinnar í Karlovy Vary er: www.kviff.com

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar