Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Verðlaundaafhending RIFF 2009

riff_logo_small

30.9.2009

Kanadíska kvikmyndin Ég drap móður mína (J´ai Tué Ma Mère), frumraun leikstjórans Xaviers Dolan, hlaut Gyllta lundann 2009 á RIFF. 

Í umsögn dómnefndar segir að persónusköpun hafi verið afar sannfærandi og leikstjóranum takist að setja samband mæðginanna í stórt samhengi. Forvitnilegt verði að fylgjast með ferli leikstjórans í framtíðinni.

Formaður dómnefndar var danska leikkonan Iben Hjejle, sem þekktust er hér á landi fyrir hlutverk sín í sjónvarpþáttunum Klovn og Anna Pihl. Auk hennar sátu í nefndinni Elísabet Ronaldsdóttir kvikmyndaklippari, Sitora Alieva sem hefur meðal annars gegnt stöðu framkvæmdastjóra Opnu rússnesku kvikmyndahátíðarinnar Kinotavr, austurríski leikstjórinn Jessica Hausner og leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir.

FIPRESCI-verðlaunin hlaut sænska mynd leikstjórans Fredrik Ekdfelt, Stúlkan (Flickan) sem segir sögu 10 ára gamallar stúlku, sem er skilin ein eftir en skapar sinn eigin raunveruleika.

Verðlaun kirkjunnar voru veitt í fjórða skipti í ár og hnossið að þessu sinni hlaut norska mynd leikjstjórans Matias Armand Jordal, Saman (Sammen) sem segir sögu fjölskyldu sem reynir hvað hún getur að bæta tengslin sín á milli. 

Áhorfendaverðlaun RIFF 2009 hlaut íslenski leikstjórinn Janus Bragi Jakobsson fyrir mynd sína, Herramenn (Gentlemen). 

Mannúðarverðlaun Rauða Krossins
 fengu þeir Jean Crousillac og Jean-Marc Sainclair fyrir heimildamynd sína Umoja: Þorpið þar sem karlar eru bannaðir (Umoja: The Village Where Men Are Forbidden). 

Umhverfisverðlaun RIFF voru veitt í fyrsta skipti í ár og þau fékk mynd Brice Laine, Dansandi skógur (Dancing Forest). 



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar