Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Tvær íslenskar myndir á Edinborg

30.9.2004

Fréttatilkynning frá Kvikmyndamiðstöð Íslands

Undanfarin ár hefur hátíðin lagt áhersu á að finna unga og efnilega kvikmyndagerðarmenn og að kynna nýja strauma og stefnur í kvikmyndagerð jafnframt því að koma breskri kvikmyndagerð á framfæri.

Edinborgarhátíðin var stofnuð 1947 sem heimildamyndahátíð og leggur því ríka áherslu að vandaða heimildamyndadagskrá. Íslenska heimildamyndin, Love is in the Air, í leikstjórn Ragnars Bragasonar er hluti af dagskránni þar sem leitast er við að sýna bestu heimildamyndir sem völ er frá öllum heimshornum.  

Hin íslenska myndin sem sýnd verður á hátíðinni er stuttmyndin, Síðasti bærinn í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar en hún er hluti af dagskrá þar sem sýndar eru "heitustu stuttmyndirnar alls staðar að úr heiminum" eins og fram kemur í lýsingu hátíðarinnar á dagskránni. Stuttmyndir eiga möguleika á verðlaunum sem kallast "The European Short Film Award" en handhafi verðlaunanna er útnefndur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunnanna sem afhent verða í Barcelona í desember.

Love is in the Air
og Síðasti bærinn eru báðar með alþjóðlega frumsýningu í Edinborg og leikstjórarnir Ragnar Bragason og Rúnar Rúnarsson fylgja myndum sínum á hátíðina.

Heimasíða hátíðarinnar er: www.edfilmfest.org.uk

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar