Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

NBS

FRÉTTIR

Þrjár íslenskar myndir á Toronto

30.9.2004

Kvikmyndin Niceland í leikstjórn Friðrik Þórs Friðrikssonar er í "Contemporary World Cinema" en hún er ein af aðaldagkrám hátíðarinnar þar sem sýndar eru myndir frá öllum heimshornum sem þykja endurspegla það besta sem gerist í kvikmyndagerð í dag. Heimildamyndin Mjóddin (Small Mall) í leikstjórn Róbert Douglas er í "Reel to Reel" en þetta er í fyrsta skipti sem íslensk heimildamynd kemst í þessa virtu dagskrá en margar heimildamyndir sem hafa verið í "Reel to Reel" hafa síðar verið útnefndar til Óskarsverðlauna. Stuttmyndin Skagafjorður í leikstjórn Peter Hutton er í "Wavelenghts" en það þykir mjög áhugaverð dagskrá þar sem sýndar  eru "avant-garde" myndir þar sem mörk kvikmyndagerðarinnar eru könnuð á nýjan og spennandi hátt. Þess má geta að mynd Hutton's, sem er þögul 16mm kvikmynd, verður opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar, Nordisk Panorama, sem haldin verður hér á landi í september.

Leikstjórar og framleiðendur íslensku myndanna eru gestir hátíðarinnar en Kvikmyndamiðstöð Íslands í samvinnu við Iceland Naturally í New York munu halda veglegt boð í tilefni af sýningum íslensku myndanna Í Toronto þann14. september þar sem lykilfólki í kvikmyndageiranum verður boðið.

Sýningatímar íslensku myndanna í Toronto

Niceland: Contemporary World Cinema

Mon 13, 14:15h, Varsity  6 (Press and Industry)
Tues 14, 21:00h, Varsity  5 & Varsity  4
Thurs 16, 16:30h. Cumberland 2

Small Mall: Reel to Reel

12.09.04  12.00 Royal Ontario Musum
13.09.04 15.00 Varsity VIP 4 (Press and Industry)
15.09.04 15.15 Cumberland 3

Skagafjordur: Wavelengths

12.09.04 20.30  Art Gallery of Ontario

Heimasíða Kvikmyndahátíðarinnar í Toronto: http://www.e.bell.ca/filmfest/2004/default.asp

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar