Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

NBS

FRÉTTIR

TVÆR ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR SÝNDAR Í PUSAN

Goodheart_Sunshine

12.10.2009

Myndirnar The Good Heart eftir Dag Kára og Sólskinsdrengurinn eftir Friðrik Þór Friðriksson taka þátt í Pusan kvikmyndahátíðinni, sem haldin er í borginni Busan í Suður-Kóreu og stendur yfir dagana 8.-16. október. Kvikmyndahátíðin er ein sú stærsta og virtasta sem haldin er í Asíu og er nú haldin í fjórtánda skipti.

Sólskinsdrengurinn tekur þátt í  svokölluðum Documentary Showcase-dagskrá hátíðarinnar, þar sem að ljósi er varpað á nýlegar og áhugaverðar heimildarmyndir frá öllum heimshornum. The Good Heart tekur þátt í alþjóðlegri kvikmyndadagskrá hátíðarinnar.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar