Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Danskir dagar og Danskir straumar 1. – 10. október.

30.9.2004

Ellefu myndir verða sýndar í Regnboganum sem gefa góða mynd af velgengi danskra kvikmynda undanfarin ár.

Opnunarmynd hátíðarinnar er BRØDRE eftir Susanne Bier frá 2004 en hún hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli. Myndin var í keppni í San Sebastian nú í haust þar sem aðalleikarar myndarinnar unnu til verðlauna fyrir leik sinn í myndinni.

Aðrar myndir sem sýndar verða eru:

LAD DE SMÅ BØRN... (AFTERMATH) er fyrsta mynd Paprika Steen frá 2004 sem er betur þekkt sem leikona. Myndin var í keppni í Karlovy Vary í sumar þar sem aðalleikona myndarinnar vann til verðlauna.

FORBRYDELSER (IN YOUR HANDS) eftir Annette K. Olesen frá 2004. Áhrifamikil mynd sem var í keppni í Berlin fyrr á árinu.
TERKEL I KNIBE (TERKEL IN TROUBLE) eftir þá Stefan Fjeldmark, Thorbjørn Christoffersen, Kresten Vestbjerg Andersen frá 2004. Þetta er teiknimynd full af húmor sem slegið hefur öll aðsóknarmet í Danmörku.

REMBRANDT (STEALING REMBRANDT) eftir Jannik Johansen frá 2003. Þetta er fyrsta mynd leikstjórans sem hefur hlotið verðskuldaða athygli.

ARVEN (INHERITANCE) eftir Per Fly frá 2003 var í keppni í San Sebastian og hlaut handritaverðlaun þar.

DE GRØNNE SLAGTERE (THE GREEN BUTCHERS) eftir Anders Thomas Jensen frá 2003. Myndin er svört kómedia sem líkt hefur verið við frönsku myndina “Delicatessen”.

IT’;S ALL ABOUT LOVE eftir Thomas Vinterberg frá 2003 með Joaquin Phoenix, Claire Danes og Sean Penn en hún var í keppni á Sundance. Þess má geta að Valdís Óskarsdóttir, sem er kvikmyndaráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands, klippti myndina.

RECONSTRUCTION eftir Christoffer Boe frá 2003. Myndin vann tvenn verðlaun á Kvikmyndahátíðinni í Cannes 2003, Camera d'Or verðlaunin og Youth Jury Award hjá Semaine de la Critique. Lars Kjeldgaard sem er gestur Danskra daga er framleiðandi myndarinnar.

THE KING IS ALIVE eftir Kristian Levring frá 2001. Myndin var í Un Certain Regard á Kvikmyndahátíðinni í Cannes sama ár og hún kom út. Kristian Levring er gestur Danskra daga.

DE FEM BENSPÆND (THE FIVE OBSTRUCTIONS) er heimildamynd sem vakið hefur mikla athygli eftir Jørgen Leth og Lars von Trier frá 2003. Árið 1967 gerði Jørgen Leth stuttmyndina The Perfect Human. Árið 2000 bað Lars von Trier, Jørgen Leth að gera fimm nýjar útgáfur að myndinni. Trier setti fram reglur sem Leth varð að fara eftir svo að hann þurfti algjörlega að endurhugsa upphaflegu myndina. The Five Obstructions er sögð vera raunsönn lýsing á því ferli sem kvikmyndgerðin er .  

Nánari upplýsingar um myndirnar hér að ofan er hægt að nálgast á www.dfi.dk


Sjónvarpið
sýnir á Dönskum dögum, kvikmyndina OKAY eftir Jesper W. Nielsen frá 2002 og danska myndaflokkinn KRØNIKEN sem slegið hefur rækilega í gegn erlendis (www.dr.dk/kroeniken).

Danskir straumar

- umræður um vinnulag og velgengni Dana í kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð


Kvikmyndamiðstöð Íslands býður til málfundar um danska kvikmyndagerð í samvinnu við systurstofnun sína í Danmörku, Det Danske filminstitut.  Dönsk kvikmyndagerð hefur fengið endurnýjaða lífdaga síðustu ár og áratug og þá sérstaklega fyrir frumleika og djörfung.  Dogma-bylgjan svonefnda er markviss tilraun til að að vinna með kjarnann í góðri kvikmyndun, segja góðar sögur án ofsmíðaðrar umgjörðar.  Myndirnar eru yfirleitt teknar á tökustað fremur en í kvikmyndaveri.  Kvikmyndagerðin er hópstarf, tökutími og tækjanotkun lítil og kostnaði er haldið í lágmarki.  

Dönsk kvikmyndgerð og árangur kvikmyndagerðarmanna, bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi er að hluta til vegna markvissrar uppbyggingar greinarinnar og þá sérstaklega með því að á frumstigi að tengja saman alla þætti kvikmyndagerðarinnar allt frá hugmynd til sýningar og dreifingar. Sjónvarpsþáttagerð hefur líka notið þessara nýju strauma og á síðustu árum  hafa verið gerðar allmargar þáttaraðir sem hafa notið mikilla vinsælda víða um heim.

Á málþinginu verður fjallað um gerð kvikmynda í Danmörku og þá sérstaklega Dogma-myndanna, þátt kvikmyndaskólans, kvikmyndastofnunar og samstarfsins í greininni.  Hversu mikilvægt hópstarf þeirra sem að verkefnum koma er, áhersluna á frásögnina, virka þátttöku leikara og að nota fjármagnið í það sem skiptir mestu máli hverju sinni.

Friðrik Þór Friðriksson
og Sjón munu stjórna umræðum sem fara munu fram á ensku.

Málstofan verður haldin á efri hæð Kaffi Reykjavíkur, laugardaginn 2.október kl. 10 með morgunkaffi og gert er ráð fyrir að henni ljúki um kl. 18. Málstofan er ætluð fagfólki og öðru áhugafólki um kvikmyndagerð.

Danskir þátttakendur í málstofunni
;
Henning Camre
hefur verið forstöðumaður dönsku kvikmyndastofnunarinnar síðan 1998 og var áður skólastjóri danska kvikmyndaskólans (Den danske filmskole) sem og enska kvikmyndaskólans (National Film School).  Henning lærði kvikmyndatöku og starfaði lengi vel sem tökumaður í Danmörku.  Hann vann til dönsku kvikmyndaverðlaunanna (Bodil) árið 1970 og nýtur almennrar viðurkenningar á heimsvísu fyrir störf sín að  kvikmyndamálum.

Lars Kjeldgaard
er handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi. Hann hefur unnið mikið fyrir sjónvarp og kvikmyndir, m.a. með Tómasi Gíslasyni. Lars var aðalhöfundur hugmynda og  handrita  fyrir hinar vinsælu þáttaraðir Edderkoppen og Forsvar en báðar voru sýndar hér í sjónvarpi. Hann framleiddi Reconstructions sem hlaut Camera D’;Or verðlaunin á Cannes kvikmyndahátíðinni árið 2003 og er hún meðal mynda sem sýndar eru á danskri kvikmyndaviku í Regnboganum dagana 1.-10. október.

Mogens Rukov
er prófessor við danska kvikmyndaskólann og hefur unnið með flestum af yngri kvikmyndagerðarmönnum Danmerkur sem handritshöfundur og ráðgjafi.  Hann var meðal annars handritsráðgjafi að fyrstu mynd lars von Trier, Forbrydelsens element og hefur ráðgjafi við myndir eftir Dag Kára og skrifaði að handritið af Festen ásamt leikstjóranum Tómas Vinterberg. Mogens hefur starfað víða um heim og er einn af lykilpersónum dönsku Dogmahreyfingarinnar.  

Lone Scherfig,
kvikmyndaleikstjóri, hefur leikstýrt þremur kvikmyndum í fullri lengd og hlotið fjölmörg verlaun víðsvegar um heim.  Þekktasta mynd hennar, Italiensk for begyndere, sem var fimmta danska dogmamyndin, komst í keppni Berínarhátíðarinnar  árið 2001.  Nýjasta mynd hennar, Wilbur Wants to Kill Himself er nú sýnd víða um heim og hefur vakið verðskuldaða athygli.

Kristian Levring
lærði við danska kvikmyndaskólann og var boðið að vera með í Dogmahópnum árið 1995. Hann tók fjórðu dogmamyndina, The King is Alive í Namibíu en í myndinni léku m.a. Romane Bohringer, Jennifer Jason Leigh og Janet McTeer.  Nýjasta mynd Kristians, The Intended var tekin í Malasíu og frumsýnd á Toronto kvikmyndahátíðinni árið 2002.
Vinca Wiedemann, útskrifaðist sem klippari frá danska kvikmyndaskólanum og hefur víðtæka reynslu sem framleiðandi, handritshöfundur og klippari.  Var kvikmyndaráðgjafi við Dönsku kvikmyndastofnunina þar sem hún kom m.a. að styrkveitingu Nóa Albinóa eftir Dag Kára og Niceland eftir Friðrik Þór Friðriksson; Lylja 4-Ever eftir Lukas Moodyson og Dogville eftir Lars von Trier. Á síðasta ári tók hún við stöðu listræns stjórnanda við nýjan framleiðslusjóð  hjá dönsku kvikmyndastofnuninni, Talent udvikling.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar