FRÉTTIR
STERKT KAFFI
Ný íslensk bíómynd
Frumsýnd Í Háskólabíó, 21 okt kl: 20:30
Vandlega skoðuð sambönd var vinnuheiti myndarinnar. Myndin fjallar um tvö ólík sambönd ungs fólks sem fara saman í ferð út á land, þarsem báðar stúlkurnar ólust upp. Annarsvegar er það Tomislav (króati) sem kom til Prag vegna kærustunnar sinnar, Mayu (finnsk- egypsk). Hinsvegar er það Renata (tékknesk leikkona) og kærasti hennar, David, sem er kvikmynda leikstjóri, mikið borgarbarn og finnst náttúran fín á póstkortum og í sjónvarpi. Maya hittir fyrir tilviljun, Renötu, æskuvinkonu sína á götu úti. Þau ákveða að fara saman í ferðalag til æskuslóðanna, Cesky Sternberk, ásamt kærustum sínum. Ferðin reynir mjög á samböndin og vinskapinn og leysa persónurnar misjafnlega úr þeim vandræðum sem á vegi þeirra verða og þeim vonbrigðum þegar ljóst verður að minningarnar um æskuslóðirnar eru miklu fallegri en raunveruleikinn. Myndin hefði allt eins getað heitið Leikstjórar, þar sem leikstjórn er mörgum eiginleg í myndinni og klassísk fyrirlitining á svokölluðum producentum er viðvarandi, jafnvel í lífinu sjálfu. Sumir leikstjórar taka því „setti“ sem producentinn reddar þeim, aðrir gera allt vitlaust ef ekki er allt einsog best er á kosið. Sumir leikstjórar hella sér yfir leikara eða yfirgefa tökustað ef þeim tekst ekki að leikstýra fólkinu í kringum sig nákvæmlega einsog þeir vildu, aðrir reyna að gera það besta úr þeim aðstæðum sem þeir eru í og reyna að virkja hæfileika fólksins í kringum sig.
Óvenjuleg meðganga myndarinnar
Öfugt við flestar aðrar bíómyndir var upphaf þessarar myndar ekki sagan. Leikstjórinn skrifaði fyrst upp karaktera sem hann langaði til að tjá. Hver persóna myndarinnar var stúderuð og skrifuð allt frá barnsburði til þess tíma sem hann stígur inní söguna, sem er í kringum 25 til 27 ára aldur. Þegar sérhver persóna var skrifuð fór leikstjórinn með karakterana til leikara og sýndi hverjum og einum þeirra karakterinn sem hann vildi að þeir léku. Sérhver leikari fékk einungis útlistingu á sínum karakter en ekki öðrum karakterum myndarinnar. Persónulýsing sérhvers karakters var á bilinu 40 til 60 bls. Síðan hófu leikarar og leikstjóri æfingar á þessum karakterum á senum sem gerðust fyrr í lífi persónanna og eru utan myndarinnar. Síðan skrifaði leikstjórinn handritið og fór í tökur. Upphaf þessarar myndar og meginmarkmið var sannfærandi persónusköpun. Það var ekki einu sinni markmið að gera kómedíu, það bara gerðist óvart og var meira ákvörðun framleiðandans að kalla hana svo. Þá ákvörðun tók hann eftir prufusýningar í Tékklandi sýndu fram á að áhorfendur hlógu endalaust. En vinnuheiti myndarinnar var „vandlega skoðuð sambönd“ og var sannfærandi persónusköpun markmið hennar. Ætlunin var að skapa persónur sem lifðu á meðal okkar, persónur sem allir ættu að hafa hitt einhverntímann á ævinni og einhverjir áhorfendur ættu að geta fundið til samúðar með.
Gagnrýni:
Hér er tekið saman í eina til tvær setningar sérhver gagnrýni sem myndin hefur fengið í Tékklandi, utan sjónvarps- og útvarpsgagnrýni. Af þeim sem gefa stjörnur er útkoman á þessa leið:
4 - 5 stjörnur: 7 sinnum
3 stjörnur: 10 sinnum
0-2 stjörnur: 3 sinnum
Jan Sverák (Óskarsverðlaunahafi fyrir Kolja):
"Frábær mynd, skandinavísk póesía"
Jan Hrejbek (Tilnefndur til Óskarsverðlaunana fyrir "Við verðum að hjálpast að")
"Sterkt kaffi er ásamt Meisturunum óvæntasta mynd ársins, það er í alvöru bruggað sterkt kaffi með flessari mynd fyrir litla peninga"
Fagtímarit:
Cinema ****
(Alls ekki fullkomin, en stórskemmtileg og áhugaverð, þannig að flýtiði ykkur í næsta kvikmyndahús á þessa mynd, jafnvel flótt þið vanalega drekkið ekki kaffi).
Premiere ***
Mjög trúverðug og húmorísk lýsing á samböndum ungs fólks, en gölluð uppbygging á myndinni.
Film a doba
(Handritshöfundurinn Gunnarsson virðist hafa skilað af sér áhugaverðu og skemmtilegu handriti sem leikstjórinn Gunnarsson hefur algjörlega klúðrað.)
Metropolis
(Þrátt fyrir ýmsa galla býr myndin yfir einhverjum göldrum. Leikstjórinn hefur tekið ákaflega djarfar ákvarðanir í tökum myndarinnar sem í flestum tilvikum hafa borgað sig, í öðrum ekki.)
Variety
Kómedía sem er svo látlaus að það er ólíklegt að hún virki víðar en á festivölum, í Tékklandi og sem sómasamleg vídeomynd.
Filmarske noviny
Mjög örugg leikara leikstjórn, bráðskemmtilegt handrit en myndin líður fyrir það að hún er gerð fyrir smáaura og klink.

