Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

NORRÆN KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í MINNEAPOLIS

nordic-lights

10.11.2009

Norræn kvikmyndahátíð verður haldin í borginni Minneapolis í Bandaríkjunum dagana 20.-22. nóvember. Þar verða sýndar kvikmyndir, stuttmyndir og heimildarmyndir frá Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Ísland og Grænlandi .

Fimm íslenskar myndir verða sýndar á hátíðinni: Heiðin eftir Einar Þór Gunnlaugsson, Skrapp út eftir Sólveigu Anspach, Góðir Gestir eftir Ísoldu Uggadóttur, Bræðrabylta eftir Grím Hákonarson og Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson.

Hátíðin er skipulögð af The American-Scandinavian Foundation og tengist öðrum norrænum kvikmyndahátíðum í borgunum Seattle, Los Angeles, Denver, Atlanta og Austin.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar