Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

FRÉTTABRÉF FK

fk[1]

24.11.2009

Félagsfundur FK
FK Heldur Opinn Félgasfund á Sólon Fimmtudaginn 26. nóvember kl. 20

Félag kvikmyndagerðarmanna auglýsir eftir umsóknum til úthlutunar úr höfundasjóði
félagsins fyrir kvikmyndir sem frumsýndar voru í sjónvarpi eða kvikmyndahúsum, gefnar
út á DVD, eða birtar með öðrum hætti fyrsta sinn á árinu 2008.
Rétt til úthlutunar skv. samþykktum FK eiga:
- Kvikmyndastjórar (ekki leiknar myndir)
- Kvikmyndatökumenn
- Klipparar
- Hljóðhöfundar
- Ljósahönnuðir

Þessi úthlutun tekur eingöngu til þeirra kvikmyndaverka sem send voru eða gefin út árið 2008.
Umsóknareyðublað er að finna á vef félagsins www.filmmakers.is
Umsóknir skulu berast:
Félagi kvikmyndagerðamanna,
pósthólf 1652, 121 Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til 15. desember 2009.
Ekki verður tekið tillit til umsókna sem berast eftir þann tíma.

MENNINGARSJÓðUR FK

Félagsmönnum Fk er bent á að Menningarsjóðurinn úthlutar allt árið skv. reglugerð sem er að finna á www.filmmakers.is. Hámarksupphæð hefur verið hækkuð í kr. 100,000. Kynnið ykkur reglugerðina og nýtið þennan möguleika sem stendur öllum skuldlausum félagsmönnum til boða.

Eddan, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin

Frestur til innsendinga kvikmyndaverka til Edduverðlaunanna rennur út 1.desember 2009.
Gjaldgeng eru kvikmyndaverk sem frumsýnd eru á tímabilinu 1. nóvember 2008 til 31.desember 2009.
Verðlaunin verða afhent í janúar 2010.

Verkunum skal skilað til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands á Túngötu 14 í Reykjavík ásamt fylgiblaði og
kvittun fyrir greiðslu innsendingargjalds.

Innsendingargjald er kr. 15.000 auk vsk fyrir hvert verk. Sé verkið einnig sent til tilnefninga
til fagverðlauna bætast við kr. 2.000 fyrir hverja tilnefningu. Innsendingu verks skal fylgja
útfyllt eyðublað sem er að finna á vefnum www.logs.is.

Innsending verka getur verið með eftirfarandi hætti:
1. Verkið sé skilað á 20 DVD diskum.
2. Verkið sé sent í stafrænu formi til ÍKSA sem sér um að setja það á net#jón. Gjald fyrir
þessa þjónustu er kr. 3.500 auk vsk.
3. Verkið sé skila" á myndbandi og sett á netþjón af ÍKSA. Kostnaður er kr. 7.500 auk vsk.

Sérstök athygli er vakin á nýjum verðlaunaflokki; BARNAEFNI ÁRSINS.
Nánari reglur er a" finna á www.logs.is



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar