FRÉTTIR
Berlinale Co-Production Market
Umsóknarfrestur rennur út 17. desember.
Berlinale Co-Production Market er samframleiðslu markaður sem settur verður upp í annað sinn í tengslum við Kvikmyndahátíðina í Berlin í febrúar. Markaðurinn í fyrra fékk mjög góðar undirtektir þar sem 270 kvikmyndagerðarmenn alls staðar að úr heiminum tóku þátt.
Frestur til að koma verkefnum inná markaðinn er útrunninn en þeir sem vilja almennt taka þátt í markaðnum geta skráð sig fram til 17. desember.
Til að skrá sig vinsamlega hafið samband við markaðinnn í síma +49-30-25920-517 eða með því að senda póst á coproductionmarket@berlinale.de
Heimasíða: http://www.berlinale.de/en/filmmarkt/co-production_market/

