Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

thicker_than_water

FRÉTTIR

DRAUMALANDINU VEL TEKIÐ Á IDFA

Draumalandid

26.11.2009

Heimildarmyndin Draumalandið var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni IDFA í Amsterdam, þar sem hún tekur þátt í aðalkeppni, þann 24. nóvember síðastliðinn. Myndinni var almennt vel tekið og fór fram líflegt leikstjóraspjall að frumsýningunni lokinni, þar sem þeir Andri Snær Magnason og Þorfinnur Guðnason, leikstjórar myndarinnar, sátu fyrir svörum.

Að auki var myndin sýnd á lokaðri markaðssýningu 22. nóvember.

IDFA-hátíðin er ein stærsta og virtasta heimildamyndahátíð heims, en henni lýkur 29. nóvember.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar