Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Kvikmyndin Kaldaljós hlaut í vikunni sín fimmtu alþjóðlegu verðlaun

13.12.2004

Kvikmyndin Kaldaljós hlaut í vikunni sín fimmtu alþjóðlegu verðlaun, Prix Spécial du Jury, á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Autrans í Frakklandi en verðlaunin opna leiðir fyrir dreifingu á myndinni þar í landi.

Verðlaunin sem Kaldljós hefur þegar hlotið á árinu eru: Kaþólsku Signis verðlaunin á Kvikmyndahátíðinni í Mar del Plata í Argentínu, Áslákur Ingvarsson og Ingvar E. Sigurðsson hlutu báðir verðlaun á Kvikmyndahátíðinni í Festroia í Portúgal, þar sem Áslákur hlaut viðurkenningu sem "Best New Talent" og Ingvar hlaut "Silver Dolphin" fyrir bestan leik í aðalhlutverki. Hilmar Oddsson hlaut svo verðlaun fyrir besta leikstjórn á Art Film Kvikmyndahátíðinni í Slóvakíu.

Kaldaljós hefur verið á stöðugu ferðalagi um allan heim undanfarið ár og myndin er nú þegar bókuð á kvikmyndahátíðir vel inn á árið 2005. Myndin hefur verið valinn inn í dagskrár hjá helstu kvikmyndahátíðum í heimi, en hátíðarferill hennar hófst sem opnunarmynd Kvikmyndahátíðarinnar í Gautborg og svo lá leiðin inn í dagskrá Kvikmyndahátíðarinnar í Berlin, í Panorama, en sú hátíð ásamt Kvikmyndahátíðinni í Cannes eru tvær af mikilvægtustu kvikmyndahátíðum í heimi.

Í framhaldi af þessu er vert að geta þess að Hilmar Oddsson leikstjóri og Ingvar E. Sigurðsson leikari hafa báðir verið tilnefndir til áhorfendaverðlauna, The Jameson People’s Choice Awards 2004, sem eru hluti af Evrópsku kvikmyndaverðlaununum fyrir kvikmyndina Kaldaljós, en verðlaunaafhendingin fer fram á morgun, þann 11. desember í Barcelona á Spáni. Hilmar Oddsson er þar í hópi leikstjóra á borð við Pedro Almodovar, Bernardo Bertolucci og Michael Winterbottom. Ingvar er í hópi vel þekktra leikara m.a. Colin Farrell, Colin Firth og Hugh Grant en Ingvar hlaut þessi sömu verðlaun árið 2000 fyrir leik sinn í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Englum alheimsins.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar