FRÉTTIR
Mynd Gríms Hákonarsonar keppir til verðlauna á Clermont-Ferrand
Stuttmyndahátíðin í Clermont-Ferrand er ein mikilvægasta og rótgrónasta stuttmyndahátíð í heiminum í dag.
Stuttmyndahátíðin í Clermont-Ferrand er ein mikilvægasta og rótgrónasta stuttmyndahátíð í heiminum í dag en hún fer fram daganna 28. janúar - 5. febrúar nk. Ein íslensk mynd, Síðustu orð Hreggviðs í leikstjórn Gríms Hákonarsonar, keppir til verðlauna á hátíðinni en myndin hlaut einmitt Canal+ verðlaunin á Nordisk Panorama sem haldin var hér á landi í haust.
Í tengslum við hátíðina er haldin markaðsmessa fyrir stuttmyndir þar sem Kvikmyndamiðstöð Íslands í samvinnu við systurstofnanir sínar á Norðurlöndum, undir merkjum Scandinavian Films, mun vera með stand og setja upp markaðssýningar þar sem sýndar verða stuttmyndirnar: Síðasti bærinn í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar, Sympathy í leikstjórn Eyrúnar Sigurðardóttur, Jóníar Jónsdóttur og Sigrúnar Hrólfsdóttur (Gjörningaklúbburinn) og Með mann á bakinu í leikstjórn Jóns Gnarr.
Heimasíða hátíðarinnar er www.clermont-filmfest.com

