FRÉTTIR
HÁTÍÐARÞÁTTTAKA Á FULLA FERÐ. THE GOOD HEART VERÐLAUNUÐ Í GAUTABORG
Þrátt fyrir að stutt sé liðið á nýja árið hafa nokkrar íslenskar myndir þegar verið sýndar á hátíðum og sérstökum viðburðum víðs vegar um heim. Ætla má að slíkum sýningum fjölgi talsvert er líður á árið og stórar og sem smáar kvikmyndahátíðir draga frá sýningartjöldum á nýjan leik. Hér verður hægt að fylgjast með hátíðarþátttöku íslenskra mynd á árinu 2010.
Í byrjun febrúar lauk kvikmyndahátíðinni í Gautaborg þar sem nýjasta mynd Dags Kára, The Good Heart, hlaut verðlaun fyrir bestu kvikmyndatökuna og Barði Jóhannsson var tilnefndur fyrir tónlistina í Reykjavík Rotterdam. Auk þessara mynda voru heimildamyndirnar Draumalandið og Sólskinsdrengurinn sýndar á hátíðinni.
Í febrúar fer 60. kvikmyndahátíðin í Berlín fram og munu þrjár íslenskar myndir vera sýndar á markaðsýningum hátíðarinnar. Um er að ræða myndirnar Algjör Sveppi og leitin að Villa, Bjarnfreðarson og Reykjavik Whale Watching Massacre.
Stuttu eftir Berlín, þá heldur Reykjavik Whale Watching Massacre á Bretlandsstendur til að taka þátt í Fright Fest, skugghlið kvikmyndahátíðarinnar í Glasgow eins og TimesOnline kallar hátíðina.
Þá er búið að staðfesta þátttöku myndanna Sólskinsdrengurinn og Kraftur: Síðasti Spretturinn á heimildamyndahátíðinni í Thessaloniki í Grikklandi sem fer fram í mars.
Að lokum, þá verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2010, Reykjavík Rotterdam, áfram á ferð og flugi víðs vegar um Bandaríkin og Evrópu.

