FRÉTTIR
55. Kvikmyndahátíðin í Berlin hefst á morgun, 10. febrúar. Ein íslensk mynd er í opinberri dagskrá hátíðarinnar, Skagafjörður eftir Peter Hutton, en hún er hluti af International Forum of New Cinema.
Skagafjörður er þögul mynd sem tekin er á 16mm filmu þar sem fegurð Skagafjarðar er sýnd á mjög ljóðrænan hátt, myndin er framleidd af Árna Páli Jóhannssyni og Jim Stark.
55. Kvikmyndahátíðin í Berlin hefst á morgun, 10. febrúar. Ein íslensk mynd er í opinberri dagskrá hátíðarinnar, Skagafjörður eftir Peter Hutton, en hún er hluti af International Forum of New Cinema.
Skagafjörður er þögul mynd sem tekin er á 16mm filmu þar sem fegurð Skagafjarðar er sýnd á mjög ljóðrænan hátt, myndin er framleidd af Árna Páli Jóhannssyni og Jim Stark.
International Forum of New Cinema er mjög framsækin og athyglisverð dagskrá þar sem sýndar eru myndir sem gera tilraunir með form kvikmyndarinnar en einnig er oft pólitískur vinkyll á þeim myndum sem valdar eru í dagskrána. Skagafjörður hefur vakið mikla athygli undanfarið en hún hefur komist í dagskrár hjá helstu kvikmyndahátíðum í heimi, má þar nefna, Kvikmyndahátíðina í Toronto, Kvikmyndahátíðina í London, Kvikmyndahátíðina í Rotterdam og nú síðast í dagskrá hér í Berlin.
Gargandi snilld eftir Ara Alexander Ergis Magnússon verður kynnt á hátíðinni en myndin var í keppni á Gautaborgarhátíðinni sem lauk sl. sunnudag þar sem hún hlaut einstaklega góðar viðtökur áhorfenda.
Myndin verður sýnd á European Film Market sem haldin er samhliða Kvikmyndahátíðinni og helstu dreifendur hvaðanæva að úr heiminum sækja.
Geta má þess að í fyrsta skipti munu allir íslenskir dreifendur sækja markaðinn en mikilvægi hans hefur aukist eftir að American Film Market sem áður var haldin í mars hefur verið færður aftur til nóvember.
Little Trip to Heaven eftir Baltasar Kormák verður einnig kynnt á European Film Market þar sem sýndur verður stuttur trailer úr myndinni sem áætlað er að verði tilbúin í maí. Miklar væntingar eru um góða sölu á myndinni hjá alþjóðlegum dreifanda myndarinnar, Katapult Film Sales.
Tvær íslenskar stuttmyndir verða kynntar á Talent Campus 2005 sem er hluti af Berlinarhátíðinni en þangað er boðið ungum og efnilegum kvikmyndagerðarmönnum, til m.a. að sækja fyrirlestra hjá þekktum kvikmyndagerðarmönnum og taka þátt í námskeiðum. Íslensku þáttakendurnir eru Bjargey Ólafsdóttir með mynd sína Falskar tennur og Ólafur Jóhannesson með mynd sína Africa United en myndin er unnin upp úr heimildamynd, með sama nafni, sem nú er í vinnslu hjá Poppóli kvikmyndafélagi.
Kvikmyndaiðnaðurinn flykkist nú til Berlinar og nóg verður af stjörnum á Potsdamer Platz, þar á meðal má nefna, Joseph Fiennes and Kristin Scott Thomas sem leika í opnunarmynd hátíðarinnar Man to Man eftir Regis Wargnier, en einnig munu Bill Murray ("The Life Aquatic With Steve Zissou"), Keanu Reeves ("Thumbsucker"), Will Smith ("Hitch"), Kevin Spacey ("Beyond the Sea"), Ian McKellen ("Asylum""Asylum"), Catherine Deneuve ("Changing Times"), Glenn Close ("Heights"), Dennis Quaid ("In Good Company"), Gerard Depardieu ("Changing Times"), Valeria Bruni-Tedeschi ("Tickets") og Liam Neeson ( "Kinsey") öll koma til Berlinar að kynna myndir sínar á hátíðinni.
Íslensk upprennandi stjarna, Álfrún Örnólfsdóttir, mun einnig sækja hátíðina, en hún hefur verið valin í Shooting Star hópinn 2005 en European Film Promotion, sem Kvikmyndamiðstöð Íslands er aðili að, leggur árlega fram lista yfir unga og efnilega leikara sem vakið hafa athygli og kynnir þá sérstaklega á kvikmyndahátíðum víða um heim. Álfrún hefur áður vakið athygli og var sérstaklega kynnt sem ung upprennandi leikona í einu helsta riti kvikmyndaheimisins Screen International á Kvikmyndahátíðinni í Cannes s.l. vor.
Shooting Star hópurinn er kynntur með pompi og pragt á Berlínarhátíðinni, þar sem hópurinn hittir aðila sem vinna við að velja leikara í hlutverk (casting directors), haldnir eru stórir blaðamannafundir og að lokum er ungu leikurunum veitt verðlaun, Studio Hamburg Shooting Star Awards, af stjórnanda Berlínarhátíðarinnar, Dieter Kosslick. Álfrún verður því mjög upptekin þá fáu daga sem hún verður í Berlin en hún fékk frí frá æfingum fyrir nýtt íslenskt leikrit eftir Krístínu Ómarsdóttur "Segðu mér allt" í leikstjórn Auðar Bjarnadóttur sem frumsýnt verður 18. febrúar nk.
Heimasíða Kvikmyndahátíðarinnar í Berlin: http://www.berlinale.de/en/HomePage.html
Heimasíða European Film Promotion: http://www.efp-online.com/

