FRÉTTIR
FANGAVAKTIN OG BJARNFREÐARSON SIGURSÆLAR Á EDDUNNI
Teymið á bak við Fangavaktina og Bjarnfreðarson var sigurvegari kvöldsins á Edduverðlaunahátíðinni sem fram fór í Háskólabíói 27. febrúar. Aðstandendur þáttaraðarinnar og kvikmyndarinnar sópuðu til sín 9 verðlaunum, meðal annars fyrir kvikmynd ársins, leikstjórn ársins (Ragnar Bragason), leikara ársins (Jón Gnarr) og meðleikara ársins (Björn Thors). Mamma Gógó varð næsthlutskörpust í flokki kvikmynda með þrenn verðlaun, þar með talið fyrir leikkonu ársins (Kristbjörg Kjeld). Heildarlista yfir vinningshafa kvöldsins má sjá á heimasíðu Eddunar.

