FRÉTTIR
STYRKIR FYRIR SKAPANDI FRUMKVÖÐLAFYRIRTÆKI
Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir viðskipti og iðnað auglýsir eftir skapandi frumkvöðlafyrirtækjum. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 31. mars 2010. Í tilkynningu frá samtökunum segir:
Stækkaðu tengslanetið, lærðu og miðlaðu þekkingu þinni.
Við greiðum kostnaðinn.*
Hverjir geta sótt um?
- Lítil og meðalstór fyrirtæki (SME), þeirra á meðal einyrkjar sem leggja áherslu á sköpun og frumkvöðlastarfsemi,
- frumkvöðlasetur í háskólum, stofnunum o.fl.
- opinberir starfsmenn hjá stofnunum sem starfa að málefnum sem tengjast tengslanetum fyrirtækja,
- fulltrúar starfsgreinasamtaka.
Mikilvægt: Til að verkefnið komi til greina þurfa að þátttakendur að vera frá að minnsta kosti þremur landanna, þar á meðal verður að vera að minnsta kosti eitt norrænu ríkjanna og eitt Eystrasaltsríkjanna.
Tegundir verkefna sem geta hlotið styrk
- Verkefni sem stuðla að myndun tengslaneta og klasa, svo sem málþing og vinnusmiðjur
- Námsheimsóknir
- Starfsþjálfun
- Þjálfun á vinnustað
Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 31. mars 2010.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi: http://www.norden.lv/en/main(undir “Grant Programs”).
* Áætlunin greiðir allt að 70% kostnaðar við ferðir, uppihald og uppbyggingu tengslaneta.
