FRÉTTIR
VEL HEPPNUÐ ÚTRÁS
Allt frá því Karl Júlíusson hannaði búningana fyrir kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur, hefur orðspor hans farið vaxandi. Í dag er Karl Júlíusson virtur leikmyndahönnuður sem hefur átt farsælt samstarf með þekktum leikstjórum á borð við nýkrýndan Óskarsverðlaunahafa, Kathryn Bigelow, og Lars Von Trier. Karl sá einmitt um leikmyndahönnunina fyrir The Hurt Locker, sem var sigurvegari hinnar 82. Óskarsverðlaunahátíðar og sópaði að sér sex Óskurum, meðal annars fyrir Bestu mynd og Bestu leikstjórn. Í þakkarræðu sinni þakkaði leikstjóri The Hurt Locker, Kathryn Bigelow, Karli sérstaklega fyrir sitt framlag. Áður höfðu Karl og Bigelow unnið saman að myndunum The Weight of Water og K19: The Widow Maker, sem meðal annars skartaði Ingvari E. Sigurðssyni í aukahlutverki og var framleidd af Sigurjóni Sighvatssyni. Þrátt fyrir að Karl hafi ekki hlotið Óskar þetta árið, var honum sýndur mikill heiður þegar hann hlaut hin virtu fagverðlaun frá Art Directors Guild fyrir framúskarandi leikmyndahönnun 2009 fyrir The Hurt Locker. Þess má til gamans geta að The Hurt Locker er jafnframt þriðja myndin sem Karl vinnur að og er tilnefnd til Óskarsverðlauna. Hinar myndirnar eru Breaking the Waves og Dancer in the Dark, báðar í leikstjórn tíðs samstarfsaðila Karls, Lars Von Trier. Karl er þessa stundina að vinna að myndinni Waterbug sem skartar Josh Brolin í aðalhlutverki.
