Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Children

FRÉTTIR

FÁLKASAGA HEIMSFRUMSÝND OG Í KEPPNI Á TRIBECA KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI

FEATHERED_COCAINE_1-Web

11.3.2010

Heimildamyndin Fálkasaga hefur verið valin á hina virtu og sívaxandi Tribeca kvikmyndahátíð, sem fram fer í New York dagana 21. apríl – 2. maí. Fálkasaga, sem er eftir þá Þorkell Harðarson og Örn Marínó Arnarson, tekur þátt í keppni heimildamynda ásamt 11 öðrum myndum og verður um heimsfrumsýningu að ræða. Fálkasaga fjallar um magnaða atburðarrás sem veiddir fálkar blandast inn í og skyggnst er inn í lokaðan heim sem örfáir aðilar í heiminum hafa haft aðgang að. Inn í þessa ótrúlegu sögu fléttast meðal annars umhverfisvernd, heimspólitík og hryðjuverk. Myndin, sem hefur verið í yfir fimm ár í framleiðslu, verður frumsýnd á Íslandi haustið 2010.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar