FRÉTTIR
Valdís Óskarsdóttir hlýtur BAFTA verðlaunin
Valdís Óskarsdóttir klippari hlaut hin virtu Bafta verðlaun fyrir klippingu á kvikmyndinni “Eternal Sunshine of the Spotless Mind”.
Bafta verðlaunin er veitt árlega af Bresku kvikmynda-og sjónvarpsakademíunni. Þau voru fyrst veitt árið 1954 og eru langþekktustu og jafnframt virtustu kvikmynda-og sjónvarpsverðlaun sem haldin eru utan Bandaríkjanna.
Valdís útskrifaðist frá Danska Kvikmyndaskólanum og hefur klippt m.a. íslensku kvikmyndirnar “Ingaló”, “Sódóma Reykjavík” “Dansinn” og “Hafið”. Meðal erlendra kvikmynda sem Valdís hefur klippt eru “Festen” og “It´s all about love” eftir Thomas Vinterberg; “Finding Forrester” eftir Gus VanSant; “Julian Donkey-Boy” eftir Harmony Korinne, og nú “Eternal sunshine of the spotless mind” undir leikstjórn Michel Gondry eftir handriti Charlie Kaufmann og með þeim Jim Carrey og Kate Winslet í aðalhlutverkum.
Jafnfram starfi sínu sem klippari hefur Valdís verið kvikmyndaráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands frá maí 2003.
Nánari upplýsingar um Bafta má finna hér-
www.bafta.org/academy/story_p1.htm

