FRÉTTIR
NJÁLSGATA VINNUR TIL FLEIRI VERÐLAUNA
Kvikmynd Ísoldar Uggadóttur, Njálsgata, sem nýverið hlaut Edduverðlaun fyrir stuttmynd ársins 2009, hlaut verðlaun fyrir bestu kvikmyndatökuna á kvikmyndahátíð óháðra mynda (European Independent Film Festival) sem fram fór í París helgina 12-14. mars. Það var Óskar Þór Axelsson sem annaðist kvikmyndatöku á Njálsgötu. Áhugasamir geta séð Njálsgötu í fullri lengd á heimasíðu No 9 Productions og hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar um Óskar Þór.

