Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Children

FRÉTTIR

ÞRJÁR ÍSLENSKAR MYNDIR Á HOT DOCS HEIMILDAMYNDAHÁTÍÐINA

FEATHERED_COCAINE_1-Web

23.3.2010

Þrjár íslenskar kvikmyndir hafa verið valdar á Hot Docs, eina virtustu heimildamyndahátíð heims, sem fram fer í Toronto 29. apríl - 9. maí 2010. Myndirnar sem um ræðir eru Fálkasaga, sem keppir í flokknum International Spectrum, Draumalandið sem valdist í flokkinn World Showcase og Íslensk alþýða sem verður hluti af Small Acts dagskránni. Þrátt fyrir að Fálkasaga sé eina íslenska myndin sem er skráð í aðalkeppnina, þá geta allar myndirnar þrjár hlotið áhorfendaverðlaunin annars vegar og Filmmaker to Filmmaker-verðlaunin hins vegar. Frekari upplýsingar um hátíðina, sýningartíma og aðrar myndir á hátíðinni er hægt að finna með því að velja viðeigandi hlekk hér að ofan.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar