FRÉTTIR
Íslenskar myndir á Kvikmyndahátíðinni í Rúðuborg
Norræna kvikmyndahátíðin í Rúðuborg hófst í gær, en hátíðin stendur frá 9. - 20. mars. Þar verða sýndar þrjár íslenskar kvikmyndir, Niceland eftir Fridrik Thór Fridriksson sem er í keppni, Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson sem er í dagskrá er nefnist "News From the North" og stuttmyndin Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson sem er í stuttmyndadagskrá. Friðrik Þór Friðriksson er gestur hátíðarinnar frá 17. - 20. mars en verðlaunaafhending mun fara fram 19. mars.
Kvikmyndahátíðin í Rúðuborg er nokkuð mikilvæg fyrir dreifingu á norrænum myndum í Frakklandi og verðlaunamyndirnar fá oftar en ekki dreifingu í Frakklandi.
Vefsíða hátíðarinnar: www.festival-cinema-nordique.asso.fr

