FRÉTTIR
ÍSLENSKUR FÓKUS Á PÓLSKRI HÁTÍÐ
Kvikmyndahátíðin í Gdynia í Póllandi, sem fer fram í lok maí, býður í ár upp á íslenskan og norskan fókus. Sýndar verða 5 norskar og 7 íslenskar kvikmyndir sem allar eru framleiddar á árunum 2006-2009. Íslensku myndirnar eru Blóðbönd, Draumalandið, Reykjavík Rotterdam, A Mother‘s Courage: Talking back to Autism, Börn, Foreldrar og RWWM.
Á meðal sérlegra gesta hátíðarinnar eru íslensku kvikmyndagerðarmennirnir Júlíus Kemp, Hanna Björk Valsdóttir og Friðrik Þór Friðriksson.
Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á vefslóðinni http://eng.fpff.pl/

