Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

STUTTMYNDADAGAR Í REYKJAVÍK

stuttmyndadagar

25.5.2010

Alls hafa 22 nýjar íslenskar stuttmyndir verið valdar á Stuttmyndadaga í Reykjavík, sem fram fer í Kringlubíói þann 31. maí næstkomandi. Tæplega 40 myndir bárust að þessu sinni og valdi dómnefndin, sem skipuð er þeim Baldvini Z leikstjóra, Nönnu Kristínu Magnúsdóttur leikkonu og Veru Sölvadóttur leikstjóra, þessar úr.

Veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestu myndirnar, 100.000 kr. fyrir fyrsta sætið, 75.000 kr. fyrir annað sætið og 50.000 kr. fyrir þriðja sætið. Þá verða veitt áhorfendaverðlaun og auk þess mun Sjónvarpið sýna þær myndir sem hljóta áðurnefnd verðlaun. Þá verður leikstjóra þeirrar myndar sem hlýtur fyrsta sætið, boðið á Kvikmyndahátíðina í Cannes að ári þar sem myndin tekur þátt í hinu svokallaða Short Film Corner.

 

Dagskráin í Kringlubíói hefst kl. 19 og stendur í rúmlega þrjár klukkustundir. Allir eru velkomnir og það kostar ekkert inn.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar