FRÉTTIR
NORRÆNAR FJÖLSKYLDUMYNDIR Í SHANGHAI
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Shanghai býður gestum sínum í ár upp á fókus á norrænar fjölskyldumyndir dagana 14.-20. júní. Sárafáar norrænar fjölskyldumyndir hafa komist í sýningar í Kína síðustu ár, og því er þessi fókus mörgum væntanlega kærkomið tækifæri til þess að kynna sér hvað er efst á baugi í norrænni barnamenningu um þessar mundir.
Alls verða sýndar á fókusnum 12 kvikmyndir í fullri lengd og ein stuttmynd. Fulltrúi Íslands er kvikmyndin Duggholufólkið (2007) eftir Ara Kristinsson.
Að fókusnum stendur Scandinavian Films, sem er regnhlífarsamtök fyrir kvikmyndamiðstöðvar Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Fókusinn er að auki styrktur af Norrænu ráðherranefndinni og ræðismannaskrifstofum Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar í Kína.
Kvikmyndahátíðin í Shanghai stendur jafnframt fyrir samframleiðsluþingi dagana 14.-16. júní, þar sem kynntar verða myndir sem þykja vænlegar til samframleiðslu og sölu og dreifingar. Ein íslensk mynd, Red Flag eftir þá Róbert Douglas og Clarence Hui, er á meðal þeirra 32 sem valdar voru inn á þingið.

