Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

ÍTARLEGUR FÓKUS Á ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Í TÉKKLANDI

Summer_film_school

22.6.2010

Samtök tékkneskra kvikmyndaklúbba mun leggja áherslu á íslenskar kvikmyndir á hinni árlegu Summer Film School hátíð, sem fram fer í Uherske Hradistě í Tékklandi 23. júlí- 1. ágúst. Um er að ræða mjög metnaðarfulla dagskrá sem inniheldur 39 myndir og spannar 90 ár, frá 1919-2009.

Myndirnar verða sýndar í ýmsum þematengdum flokkum, svo sem þöglar kvikmyndir, víkingar, þróun íslenskra gamanmynda, íslensk kvikmyndagerð og tónlist. Þá verður verkum Friðriks Þórs Friðrikssonar og Dags Kára gert hátt undir höfði í sérstökum fókus á leikstjóraferla þeirra. Hrafn Gunnlaugsson, Ásgrímur Sverrisson, Friðrik Þór og Dagur Kári verða meðal gesta á hátíðinni. Hér má nálgast dagskrána í heild sinni á ensku.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar