FRÉTTIR
FRIÐRIK ÞÓR Í KASTLJÓSINU Á ÞREMUR KVIKMYNDAHÁTÍÐUM
Kvikmyndum Friðriks Þórs Friðrikssonar verður gert hátt undir höfði á að minnsta kosti þremur kvikmyndahátíðum í sumar þar sem sérstök dagskrá með verkum leikstjórans verður á boðstólnum. Art Film Fest í Slóvakíu ríður á vaðið í júní, síðan alþjóðlega kvikmyndahátíðin Gullna Apríkósan í Armeníu um miðjan júlí og loks Summer Film School í Tékkalandi í lok júlí.
Kvikmyndahátíðin Art Film Fest fer fram í Slóvakíu dagana 18.-26. júní og þar verður meðal annars að finna yfirgripsmikla og ítarlega dagskrá helgaða verkum Friðriks Þórs. Dagskráin nefnist „Iceland according to Fridriksson“ og inniheldur 19 myndir sem spanna 35 ár á ferli leikstjórans. Þar kennir ýmissa grasa, allt frá framúrstefnulegum stutt- og heimildamyndum yfir í þekktari verk leikstjórans í fullri lengd.
Kvikmyndir Friðriks Þórs til sýninga á Art Film Fest:
1975 Nomina sunt odiosa
1980 Brennu-Njálssaga | The Saga of Burnt Njála
1981 Eldsmiðurinn | The Blacksmith
1985 Hringurinn | Ring Road (aka The Circle)
1982 Rokk í Reykjavík | Rock in Reykjavik
1984 Kúrekar norðursins | Icelandic Cowboys
1987 Skytturnar | White Whales
1989 Flugþrá | Sky without Limit (TV)
1990 Englakroppar/ Pretty Angels (TV)
1991 Börn nattúrunnar | Children of Nature
1994 Bíódagar | Movie Days
1995 Á köldum klaka | Cold Fever
1996 Djöflaeyjan | Devil's Island
2000 Englar alheimsins | Angels of the Universe
2000 On Top Down Under (part of Erotic Tales vol. 7)
2002 Fálkar | Falcons
2004 Næsland/Niceland
2009 Sólskinsdrengurinn/ A Mother's Courage: Talking Back to Autism (aka Sunshine Boy)
2010 Mamma Gógó
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Gullna Apríkósan fer fram í Yerevan, Armeníu, dagana 11-18. júlí. Á hátíðinni verða nokkrar af þekktari myndum Friðriks Þórs sýndar. Friðrik Þór mun jafnframt vera í forsvari fyrir dómnefnd hátíðarinnar í flokki kvikmynda í fullri lengd.
Kvikmyndir Friðriks Þórs á Gullnu Apríkósunni:
1987 Skytturnar | White Whales
1991 Börn nattúrunnar | Children of Nature
1994 Bíódagar | Movie Days
1995 Á köldum klaka | Cold Fever
1996 Djöflaeyjan | Devil's Island
2000 Englar alheimsins | Angels of the Universe
2004 Næsland/Niceland
Eins og fram kemur hér, mun Summer Film School í Tékklandi standa fyrir ítarlegum fókus á íslenskar kvikmyndir undir lok júlí 2010. Hluti af dagskránni verður helgaður Friðriki Þór og verða 15 myndir leikstjórans sýndar.
Kvikmyndir Friðrik Þórs á Summer Film School: