FRÉTTIR
FILMKONTAKT NORD AUGLÝSIR EFTIR ÞÁTTTAKENDUM FYRIR SHEFFIELD DOC/FEST MARKAÐINN
Sheffield Doc/Fest er leiðandi markaður, hátíð og ráðstefna á sviði heimildamynda í Bretlandi. Sheffield Doc/Fest fer fram 3. - 7. nóvember 2010 og er kjörinn vettvangur til að hitta mögulega fjárfesta og framleiðendur.
Filmkontakt Nord hyggst senda norræna sendinefnd til Sheffield og óskar eftir umsóknum frá áhugasömum aðilum. Umsóknarfrestur um stöðu í sendinefndinni rennur út 2. ágúst 2010. Nánari upplýsingar er að finna á hér.

