Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

NÝ STJÓRN ÍKSA - HILMAR SIGURÐSSON NÝR FORMAÐUR

Eddan2010

30.6.2010

Kosið var í nýja stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar á aðalfundi sem haldinn var 29. júní 2010. Hilmar Sigurðsson var kjörinn formaður ÍKSA og tekur við keflinu af Birni Brynjúlfi Björnssyni. Björn Brynjúlfur, sem hefur verið í stjórn ÍKSA síðastliðin ellefu ár, gaf ekki kost á sér á ný og var honum þakkað fyrir metnaðarfullt og gott starf í þágu akademíunnar.

Nýja stjórn skipa:

Hilmar Sigurðsson, formaður
Snorri Þórisson, gjaldkeri
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, ritari
Anton Máni Svansson, meðstjórnandi
Árni Ólafur Ásgeirsson, meðstjórnandi
Laufey Guðjónsdóttir, meðstjórnandi
Ragnar Bragason, meðstjórnandi



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar