Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

thicker_than_water

FRÉTTIR

KÓNGAVEGUR TIL LOCARNO

kongavegur

15.7.2010

Kvikmyndin Kóngavegur eftir Valdísi Óskarsdóttur hefur verið valin til þess að taka þátt í keppni á kvikmyndahátíðinni í Locarno í Sviss nú í ágúst.

Kóngavegur keppir í dagskrá sem nefnist Filmmakers of the Present, þar sem að upprennandi leikstjórar taka þátt með fyrstu eða aðra mynd sína. Valdís verður sjálf viðstödd hátíðina ásamt tveimur leikurum myndarinnar, þeim Nínu Dögg Filippusdóttur og Gísla Erni Garðarssyni.

Locarno-hátíðin er ein af stærstu evrópsku kvikmyndahátíðunum sem haldnar eru ár hvert. Hátíðin er nú haldin í 63. skipti.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar