FRÉTTIR
THE GOOD HEART TILNEFND TIL KVIMYNDAVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS
Kvikmyndin The Good Heart eftir Dag Kára Pétursson er framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Verðlaunin verða afhent í Reykjavík í byrjun nóvember.
Aðrar myndir sem tilnefndar eru í ár eru Submarino eftir Thomas Vinterberg frá Danmörku, Miesten Vuoro eftir Joonas Berghäll og Mika Hotakainen frá Finnlandi, Upperdog eftir Sara Johansen frá Noregi og Metropia eftir Tarik Saleh frá Svíþjóð.
Tilnefndar eru myndir sem þykja hafa mikið listrænt gildi og standa föstum fótum í norrænni menningu.

