FRÉTTIR
KÓNGAVEGI VEL TEKIÐ Í LOCARNO
Kvikmyndin Kóngavegur eftir Valdísi Óskarsdóttur var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Locarno í Sviss sem fór fram dagana 4.-14. ágúst síðastliðinn.
Valdís var sjálf viðstödd sýningarnar í Locarno ásamt tveimur aðalleikurum myndarinnar, þeim Gísla Erni Garðarssyni og Nínu Dögg Filippusdóttur. Myndin var sýnd tvisvar á hátíðinni og var vel tekið.
Kvikmyndahátíðin í Locarno var í ár haldin í 63. skipti. Hún er ein af stærstu árlegu kvikmyndahátíðunum í Evrópu.

