Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

myrin

FRÉTTIR

BJARNFREÐARSON TIL MONTREAL

Bjarnfredar_gagn

26.8.2010

Kvikmyndinni Bjarnfreðarson, eftir Ragnar Bragason, hefur verið boðið að taka þátt í The World Film Festival kvikmyndahátíðinni sem fer fram í Montreal í Kanada dagana 26. ágúst til 6. september.

Bjarnfreðarson verður sýnd í prógrammi sem kallast Focus on World Cinema þar sem sýndar eru nýjar og spennandi kvikmyndir frá öllum heimshornum.

The World Film Festival í Montreal leggur sig á ári hverju fram við að bjóða gestum sínum upp á sem fjölbreyttasta mynd af kvikmyndamenningu heimsins og að koma áhugaverðum kvikmyndum  og kvikmyndagerðarmönnum á framfæri.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar