FRÉTTIR
MAMMA GÓGÓ TIL TORONTO
Kvikmyndin Mamma Gógó, eftir Friðrik Þór Friðriksson, tekur þátt í alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto sem fer fram dagana 9.-19. september.
Mamma Gógó tekur þátt í dagskrá sem kallast Contemporary World Cinema, en þar er kastljósinu brugðið á áhugaverðar nýjar myndir frá öllum heimshornum.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Toronto er nú haldin í 35. skipti. Hún er helsta kvikmyndahátíð Norður-Ameríku og ein stærsta og virtasta kvikmyndahátíð heims.

