Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

KVIKMYNDASMIÐJA RIFF Í FJÓRÐA SINN

Riff_Logo

27.8.2010

Kvikmyndasmiðja RIFF verður haldin núna í fjórða sinn dagana 30. september til 3. október.

Dagskráin þéttist dag frá degi og ljóst er að lítið verður um svefn sólarhringana sem kvikmyndasmiðjan stendur í ár. Hér eru nokkrur atriði sem búast má við en nákvæm dagskrá með fleiru mun birt þegar hún hefur verið staðfest.

Jim Jarmusch mun halda masterklassa í Háskóla Íslands þann 1. október og mun kvikmyndasmiðjan að sjálfsögðu sitja þar á fremsta bekk. Jarmusch þarf varla að kynna fyrir mörgum en hann er ókrýndur konungur sjálfstæðrar amerískrar kvikmyndagerðar og hefur m.a. gert myndirnar Night on Earth, Coffee and Cigarettes og Broken Flowers.

 

Frá Kanada kemur leikstjórinn og framleiðandinn Peter Wintonick. Peter hefur hlotið fjölda verðlauna víðsvegar um heim fyrir myndir sínar og verkefni og er talinn einn helsti hugsuður Kanadamanna um framtíð miðlunar. Hann ætlar að bjóða upp á lagskipta vínarköku þar sem hann ræðir að hluta til um feril sinn, ráðleggur þátttakendum, útskýrir bransann, hvetur til róttækni og viðrar hugmyndir sínar um hvernig segja á sögu. Með öðrum orðum: “How to survive as an Indie in a not so independent world”.

 

Framleiðanda-panillinn hefur verið vinsæll undanfarin ár. Þar gefst þátttakendum færi á að kynna hugmyndir sínar um næsta verkefni og fá hreinskilna dóma um þau frá þrautreyndum framleiðendum og jöxlum úr bransanum. í ár mun m.a. sitja þar Pilippe Bobert sem hefur framleitt myndir á borð við You the living og Lourdes.

 

Valdís Óskarsdóttir er einn besti klippari þjóðarinnar sem hefur síðustu ár einnig hreiðrað um sig í leikstjórastólnum með Sveitabrúðkaupi og Kóngavegi. Valdís hefur hlotið mörg alþjóðleg verðlaun fyrir verk sín en hún klippti meðal annars Festen, Finding Forrester, Jonathan Donkeyboy og Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Ef einhver kann að segja sögu er það hún og það ætlar hún að ræða við þátttakendur í smiðjunni auk þess að svara spurningum þeirra.

 

Það er nauðsynlegt að vita hvað maður á að gera við myndina þegar hún er tilbúin. Cameron Bailey stjórnandi Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðarinnar í Toronto veit allt um það og hvernig hátíðirnar virka. Hvernig er best að nota kvikmyndahátíðir?

 

Fleiri fagmenn munu einnig koma að málum en Kvikmyndasmiðjan fer ekki bara fram í skólastofum eða fyrirlestrarsölum. Valdar myndir verða sýndar, keppt er um Gulleggið, farið verður á tónleika og svo eru a.m.k. þrjár mismunandi RIFF-samkomur (partí) þar sem þátttakendur hristast saman við bransafólkið og hvert annað.

 

Verð fyrir þá sem þegar búa í Reykjavík er 14.000.- ISK

Innifalið í þessu verði er passi á alla hátíðina, frítt inn á alla masterklassa og fyrirlestra alla hátíðina, hádegisverður meðan Kvikmyndasmiðjan stendur, þrjú RIFF partí, tónleikar og 20% afsláttur á Thorvaldsen, sem er bar hátíðarinnar í ár, fram til miðnættis á meðan hátíðin stendur.

 

Fullkomin löng kvikmyndahelgi til að brýna andann, fá ábendingar, mynda tengsl, kynnast nyjum hugmyndum, fá svör við ótal spurningum og skemmta sér stórkostlega á lokaspretti alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavik.

 

Frekari upplýsingar má nálgast á www.riff.is



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar