Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Metþátttaka á handritanámskeið Mogens Rukov

6.4.2005

Hinn einstaki handritshöfundur og kennari Mogens Rukov mun halda 3ja daga námskeið fyrir kvikmyndagerðarmenn og aðra áhugamenn á Íslandi.
Námskeiðið mun verða í fyrirlestraformi dagana 14.,15.,og 16. apríl frá 13:00 til 17:00. Mogens mun á námskeiðinu vísa sérstaklega til myndanna Festen, Taxi Driver og Mullholland Drive en þær verða sýndar í Regnboganum dagana 11.,12. og 13. apríl, kl 20:00 á vegum Iceland Film Festival. Þeir sem skrá sig á námskeiðið munu einnig fá frían aðgang að sýningum á kvikmyndunum.

Við skráningu tekurveffangið karolina@icelandicfilmcentre.is. Verð er 5.000 kr. og eru innifaldar sýningarnar á kvikmyndunum þremur. Greiða verður þátttökugjaldið fyrir mánudaginn 11. apríl.

Fyrirlestrarnir verða á ensku og haldnir á Kaffi Reykjavík, 2.hæð. Áhugasömum er bent á að skrá sig sem fyrst því fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Mogens fæddist árið 1943 og hefur lengst af kennt handritsgerð við Danska kvikmyndaskólann og er hann af mörgum talinn eiga stóran þátt í þeirri velgengni sem danskar kvikmyndir hafa notið síðustu árin. Hann hefur skrifað þó nokkur handrit sjálfur, m.a. Festen ásamt Tomas Vinterberg og einnig verið ráðgjafi og "handritslæknir" á fjölmörgum myndum.

Meira um Mogens Rukov: http://www.imdb.com/name/nm0750000/

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar