Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Gestur frá Kvikmyndahátíðinni í Toronto

14.4.2005

Einn af framámönnum Kvikmyndahátíðarinnar í Toronto, Steve Gravestock, kom til landsins á miðvikudag og dvelur hér í nokkra daga sem gestur Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Tilgangur með heimsókn hans er að skoða nýjar íslenskar kvikmyndir og kvikmyndir á eftirvinnslustigi, en þetta er í fyrsta skiptið sem gestur frá hátíðinni kemur til landsins sérstaklega í þeim tilgangi. Kvikmyndahátíðin í Toronto er ein stærsta og virtasta kvikmyndahátið í heimi og mjög mikilvæg fyrir sölu á kvikmyndun til Bandaríkjanna. Steve Gravestock hefur sýnt íslenskum kvikmyndagerðarmönnum og kvikmyndum mikinn áhuga undanfarin ár og gefið þeim virðingarsess í dagskrám hátíðarinnar.

Heimasíða Kvikmyndahátíðarinnar í Toronto: http://www.e.bell.ca/filmfest/2005/default.asp

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar