FRÉTTIR
PIXEL LAB 2011: OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
Vinnustofa á vegum Power to the Pixel, Pixel Lab, mun fara fram í annað sinn dagana 26. júní til 2. júlí í Potsdam í Þýskalandi. Markmið Pixel Lab er að aðstoða fagfólk í kvikmynda– og fjölmiðlageiranum í að aðlagast og finna tækifæri í hinu síbreytilega, stafræna starfsumhverfi. Í ár verður lögð sérstök áhersla á gerð efnis sem hægt er að dreifa í gegnum mismunandi miðla. Umóknarfrestur rennur út 1. apríl 2011.
Frekari upplýsingar um Pixel Lab veitir Ines Braga, ines@powertothepixel.com , +44 (0)20 7453 4017.
Fréttatilkynning um Pixel Lab 2011.

