FRÉTTIR
KVIKMYNDIN KALDALJÓS VINNUR TIL VERÐLAUNA
Kvikmyndin Kaldaljós í leikstjórn Hilmars Oddssonar vann til þriggja af fimm verðlaunum sem veitt voru á Kvikmyndahátiðinni í Verona á Ítalíu síðastliðinn laugardag. Hátíðin gengur undir nafninu Schermi´Amore og er þetta í níunda sinn sem hún er haldin.
Kaldaljós vann til gullverðlauna hátíðarinnar, hún var valin besta myndin auk þess sem áhorfendur kusu hana bestu myndina. Einnig fékk Sigurður Sverrir Pálsson verðlaun fyrir bestu myndatöku.
Önnur verðlaun á hátíðinni, verðlaun ungra áhorfenda (Young Jury) og verðlaun fyri bestan leik, komu
í hlut frönsku myndarinnar , "Lila dit ca" og pólsku myndarinnar "Stranger".

