FRÉTTIR
DOCXCHANGE Á HOT DOCS OG NORDISK PANORAMA: UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 4. MARS
Umsóknarfrestur um þátttöku á docXchange rennur út þann 4. mars 2011. Markmið docXchange er að þjálfa og kynna mögulegar fjármögnunarleiðir fyrir kvikmyndagerðarmenn með heimildamyndir í bígerð. Fyrri hluti docXchange fer fram í Kanada í maí, í tenglsum við Hot Docs heimildamyndahátíðina. Síðari hluti námskeiðsins fer fram í september á Nordisk Panorama, sem fram fer í Danmörku í ár.
Upplýsingar um docXchange og umóknareyðublöð má finna hér, á heimasíðu Filmkontakt Nord.

