FRÉTTIR
OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR Á NUFF
Búið er að opna fyrir umsóknir á Nordic Youth Film Competion sem fram fer á Nordic Youth Film Festival (NUFF) í Noregi dagana 11. – 19. júní 2011. Gjaldgeng verk eru kvikmyndir framleiddar síðastliðin tvo ár í leikstjórn aðila sem eru 25 ára eða yngri og eru frá Norðurlöndunum, Eystrasaltslöndunum eða Norð-vestur Rússlandi. Umsóknarfrestur rennur út 1. apríl 2011.
Upplýsingar og umsóknargögn má finna á www.nuff.no

