Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

myrin

FRÉTTIR

Reykjavík shorts & docs

Heimilda- og stuttmyndahátíð í Reykjavík, 25.-26. maí

25.5.2005

shorts & docs 2005Hátíðin, sem nú verður haldin í fjórða sinn, hefur skapað sér sérstöðu sem vettvangur fyrir íslenska höfunda stutt- og heimildamynda til að frumsýna verk sín. Að þessu sinni verða sýndar 5 íslenskar heimildamyndir og 9 stuttmyndir.

Er sérstök ástæða til að nefna stuttmynd Gríms Hákonarsonar, Slavek the Shit, sem valin var til sýninga í Cinefondation skólamynda keppninni í Cannes. Opnunarmynd heimildamyndahlutans verður ný heimildamynd Ásthildar Kjartansdóttur um myndlistarkonuna Rósku.

Myndirnar verða sýndar í Tjarnarbíói og í Red Rock Cinema í Hellusundi nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar