Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

The Sea

FRÉTTIR

SÍÐASTI BÆRINN vinnur til verðlauna á Spáni

21.6.2005

last_farm_2Stuttmyndin Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson vann aðalverðlaunin á Huesca International Film Festival sem haldin var á Spáni dagana 9. - 18. júní s.l. Myndin fékk einnig sérstaka tilnefningu frá gagnrýnendum. Fyrir vikið er Síðasti Bærinn komin í forval vegna Óskarsverðlaunanna á næsta ári.

Síðasti bærinn hefur verið sigursæl á hátíðum undanfarna mánuði en hún hefur meðal annars verið valin besta stuttmyndin á Nordisk Panorama 2004. Besta stuttmyndin á Kiev International Film Festival Molodist 2004 og fékk Edduverðlaunin í sínum flokki árið 2004. Auk þess hefur sjónvarpsstöðin Arte í Frakklandi keypt sýningarrétt á myndinni.

Síðasti bærinn fjallar um aldraðan bónda sem er orðinn einn eftir í dalnum ásamt konu sinni, þar sem aðrir bæir eru komnir í eyði.  Mikið er að þeim hjónum lagt að bregða búi og flytja í þéttbýlið.  Með aðalhlutverk fer Jón Sigurbjörnsson en með önnur hlutverk fara Kristjana Vagnsdóttir, Sigurður Skúlason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Arnheiður Steinþórsdóttir.

Framleiðendur myndarinnar eru Þórir Snær Sigurjónsson og Skúli Malmquist fyrir ZikZak kvikmyndagerð en myndin naut stuðnings Kvikmyndastöðvar Íslands, Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins auk sænska sjónvarpsins.

Heimasíða myndarinnar er: http://thelastfarm.blogspot.com/

Heimasíða Huesca hátíðarinnar er: http://www.huesca-filmfestival.com/

 



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar