FRÉTTIR
ICELANDIC CINEMA ONLINE - NÝR ÍSLENSKUR KVIKMYNDAVEFUR
Íslenskar kvikmyndir eru svo sannarlega partur af prógraminu hjá Icelandic Cinema Online. Nýr íslenskur vefur, Icelandic Cinema Online, fer í loftið þann 23. maí og er hann fyrstur sinnar tegundar hér á landi þar sem lögð er áhersla á að bjóða upp á fjölbreytt íslenskt kvikmyndaefni á einum stað. Hægt verður að nálgast þar íslenskar kvikmyndir, heimildarmyndir, stuttmyndir, sjónvarpsþætti og annað kvikmyndatengt efni.
Hingað til hefur verið erfitt að nálgast íslenskar kvikmyndir bæði hérlendis og erlendis frá og ætlunin er að bæta úr því með vefnum Icelandic Cinema Online. Enskir textar eru við allar myndirnar og eru þýskir, franskir og jafnvel textar á fleiri tungumálum við sumar myndir. Viðmót vefsins er allt á ensku og því auðvelt fyrir erlenda notendur að nota vefinn.
Markmiðið með vefnum er einnig að skapa vettvang fyrir íslenska framleiðendur og kvikmyndagerðarmenn til að koma verkum sínum á framfæri á einfaldan hátt í gegnum Netið á mun stærra markaðssvæði en hefur verið mögulegt hingað í gegnum hefbundnar dreifileiðir. Undanfarin ár hefur orðið gríðaleg aukning í eftirspurn eftir kvikmyndaefni á Netinu og er mikilvægt fyrir íslenska framleiðendur að nýta sér þau markaðstækifæri sem Netið hefur upp á að bjóða. Með hraðari internettengingum og tækninýjungum hefur skapast sá möguleiki að streyma kvikmyndum á Netinu í góðum gæðum án vandkvæða.
,,Það er spennandi að geta boðið upp á kvikmyndaefni sem hefur verið erfitt að nálgast líkt og er oft með íslenskar heimilda- og stuttmyndir” segir Sunna Guðnadóttir framkvæmdastjóri Icelandic Cinema Online. ,,Vefurinn fer í loftið með um 30-40 titla og ætlunin er að bæta við nýju efni í hverri viku. Við erum statt og stöðugt að vinna í að bæta við myndum og textum á fleiri tungumálum. Íslenskar kvikmyndir í fullri lengd eru á annað hundrað svo ekki sé talað um allan þann fjölda heimildamynda og stuttmynda sem hafa verið gerðar hér á landi. Það er því af nógu á að taka og margar skemmtilegar íslenskar kvikmyndir til sem hafa verið ófáanlegar í langan tíma. Við ætlum að gera okkar besta til að grafa þessar myndir upp og setja á vefinn.” segir Sunna. Beta útgáfa af vefnum fer í loftið 23. maí en þann 19. verður sérstök opnun fyrir Facebook vini vefsins.
Nú er ekkert til fyrirstöðu og um að gera að endurnýja gömul kynni við Fru Stellu, Karlakórinn Heklu, Nóa Albinóa og fleiri skemmtilega karaktera úr íslenskri kvikmyndasögu.
Icelandic Cinema Online á vefnum
Icelandic Cinema Online á Facebook
www.facebook.com/icelandiccinemaonline

